Fotbolti.net
01.06.25 - 13:10
Brynjar Ingi Erluson

Matheus Cunha til Man Utd (Staðfest)

Man Utd er búið að ganga frá fyrstu sumarkaupunum

Man Utd er búið að ganga frá fyrstu sumarkaupunum

Canon

Mynd: EPA

Manchester United hefur gengið frá kaupum á brasilíska sóknarmanninum Matheus Cunha frá Wolves.
Cunha, sem er 26 ára gamall, var gríðarlega spenntur fyrir tækifærinu að ganga í raðir United, en félagið virkjaði 62,5 milljóna punda klásúluverð í samningi hans á dögunum og hefur nú gengið frá kaupunum.

Brassinn hefur verið aðalmaður Wolves síðustu tvö árin og var stór ástæða þess að liðið hélt sæti sínu í úrvalsdeildinni.

Gengið verður frá atvinnuleyfi fyrir Cunha eftir landsleikjatörnina og verður hann formlega skráður í hópinn 1. júlí næstkomandi.

Cunha er fyrsti leikmaðurinn sem United kaupir í sumarglugganum, en framundan er stórt sumar hjá félaginu sem ætlar að gera svakalega endurnýjun á hópnum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.