Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 12:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvað næst fyrir Freysa?
Freyr Alexandersson.
Freyr Alexandersson.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alfreð Finnbogason er yfirmaður fótboltamála hjá Rosenborg.
Alfreð Finnbogason er yfirmaður fótboltamála hjá Rosenborg.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bröndby er að leita að þjálfara.
Bröndby er að leita að þjálfara.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Freyr Alexandersson var í dag látinn fara sem þjálfari Brann í Noregi. Í yfirlýsingu norska félagsins kom fram að eftir samtal milli félagsins og Freys þá sé samkomulag um að samstarfinu ljúki samstundis.

Freyr hefur verið þjálfari liðsins frá því í janúar í fyrra. Hann kom liðinu í deildarkeppni Evrópudeildarinnar á sínu fyrsta tímabili, endaði með liðið í 4. sæti norsku deildarinnar og kom því í vor í úrslitaleik norska bikarsins.

En gengið í norsku deildinni í ár hefur verið dapurt og þess vegna er farið í breytingar. Liðið hefur tapað þremur leikjum í röð og situr í 11. sæti norsku deildarinnar eftir tólf leiki.

En hvað næst fyrir Freysa? Skoðum nokkra möguleika.

Fær hann símtalið frá Alfreð?
Það hefur gengið herfilega hjá Rosenborg á tímabilinu og var Alfred Johansson látinn fara fyrir nokkru síðan. Alexander Tettey, fyrrum miðjumaður Norwich, hefur stýrt liðinu til bráðabirgða en nú er álitlegur kostur að losna. Þá sérstaklega í ljósi þess að yfirmaður fótboltamála hjá Rosenborg er Alfreð Finnbogason en hann og Freyr þekkjast mjög vel.

Stórir klúbbar í Skandinavíu
Þá er þjálfarastaðan hjá stórum félögum í Skandinavíu laus. Freyr var orðaður við danska félagið Bröndby áður en hann tók við Brann en Steve Cooper var nýverið rekinn frá Bröndby. Freyr er með reynslu úr danska boltanum eftir að hafa áður stýrt Lyngby og er orðsporið hans gott þar í landi.

Sænska félagið Malmö er þá einnig í þjálfaraleit eftir að hafa rekið spænska þjálfarann Miguel Angel Ramirez eftir vonda byrjun á tímabilinu. Malmö gæti horft til Freys núna þegar hann er laus. Á meðal leikmanna Malmö eru Daníel Tristan Guðjohnsen og Arnór Sigurðsson.

Kallar England?
Freyr hefur ekkert farið leynt með það að draumurinn sé að þjálfa á Englandi. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur hann verið nálægt því að fara til Englands fyrr á sínum þjálfaraferli. Hann var sterklega orðaður við Cardiff fyrir nokkru síðan en fleiri félög á Englandi hafa einnig sýnt honum áhuga.

Alltof stór fyrir Bestu deildina
Það hafa einhverjir gælt við þá hugmynd að Freyr gæti komið heim ef staða í Bestu deildinni losnar en það eru litlar sem engar líkur á því. Freyr hefur skapað sér stórt nafn erlendis og mun væntanlega vilja byggja á því.

Kannski bara gott frí
Starf fótboltaþjálfarans er pressumikið og tekur mikinn kraft úr manni. Freyr hefur tekið sér litla pásu frá því hann tók við Lyngby sumarið 2021 og gæti verið að hann vilji bara taka sér pásu og njóta með fjölskyldu sinni áður en hann mætir af krafti til baka.
Slapp
banner
banner
banner