Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stjórn Rosenborg segir af sér eftir hræðilega byrjun
Alfreð Finnbogason er yfirmaður fótboltamála hjá félaginu
Alfreð Finnbogason er yfirmaður fótboltamála hjá félaginu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjórn Rosenborg sagði af sér á neyðarfundi félagsins í dag eftir skelfilega byrjun liðsins á tímabilinu.

Rosenborg var stórveldi í fótboltaheiminum á Norðurlöndunum en hefur ekki náð háum hæðum undanfarin ár. Botninum hefur verið náð og situr liðið í fallsæti eftir 11 umferðir í norsku deildinni.

Alfreð Finnbogason er yfirmaður fótboltamála hjá félaginu.

Rosenborg greinir frá því á heimasíðu félagsins að félagsmenn hafi lagt fram kröfu um aukaaðalfund og í kjölfarið sagði öll stjórnin af sér.

Rúmlega 50 undirskriftir bárust um ósk um aukaaðalfund og stjórnin viðurkennir að félagsmenn hafi fullan rétt á þessu.


Slapp
banner
banner