Adam að yfirgefa Val

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Adam Ægir Pálsson er á förum frá Val en frá þessu greinir Hjörvar Hafliðason í Dr. Football þætti dagsins. Hjörvar segir að Adam sé ekki lengur að æfa með Val. Í þættinum er Adam orðaður við Keflavík og Fram og áður hefur hann verið orðaður við Þór.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur Valur gefið honum leyfi til að finna sér nýtt félag og fleiri félög í Bestu deildinni hafa áhuga á þessum skapandi leikmanni. Slúðrað hefur verið um Víking, Breiðablik og KA í þeim efnum.

TENGT EFNI
Adam aftur ónotaður varamaður - Gæti hann farið í Þór?
Adam (1998) hefur ekki komið við sögu í síðustu þremur leikjum Vals og er með lausan samning í haust. Það vakti mikla athygli að Adam kom ekki við sögu í leikjum Vals gegn ÍA og Keflavík þar sem Valur fékk einungis eitt stig úr leikjunum og Adam býr yfir gæðum til að skapa mörk.
Hann er sóknarmaður sem hefur skorað þrjú mörk og lagt upp eitt til þessa á tímabilinu í átta byrjunarliðsleikjum.
Hann var keyptur í Val frá Víkingi fyrir tímabilið 2023 eftir að hafa spilað frábærlega með Keflavík á láni tímabilið á undan. Félagaskiptaglugginn opnar 16. júlí.