Adam aftur ónotaður varamaður - Gæti hann farið í Þór?

Ekkert komið við sögu í síðustu þremur leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sneri aftur til Vals á síðasta ári eftir árs dvöl á Ítalíu.

Adam Ægir Pálsson hefur ekkert komið við sögu í liði Vals í undanförnum þremur leikjum. Fyrir leikina þrjá hafði Adam komið við sögu í öllum leikjum liðsins, þar af byrjað átta þeirra, og kom hann með beinum hætti að fjórum mörkum.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, var spurður út í stöðuna á Adam og hvort eitthvað hafi komið upp á sem orsakar mínútuleysi Adams eftir 4-2 sigur liðsins á Þór í gær.

TENGT EFNI
Siggi Höskulds: Höfum rætt við hann eins og flest önnur félög
„Nei, það er ekkert sem hefur gerst. Það er fullt af öðrum mönnum sem hafa ekki komið inn á. Við erum aðeins að blóðga menn. Kristján Oddur og Ólafur Flóki komu ekki inn í dag. Það eru fleiri en hann. Það hefur ekkert gerst,“ sagði Hermann.
Taka Þórsarar upp tólið?
Þá var Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, spurður út í möguleikann á að fá Adam frá Val í samtali við Árna Gísla Magnússon á Vísi.
„Nei, Adam er náttúrulega bara að renna út á samningi í haust. Það getur vel verið að við spjöllum við hann og reynum að fá hann út tímabilið,“ sagði Sigurður.
Adam sneri aftur í herbúðir Vals á síðasta ári eftir árs dvöl á Ítalíu. Hann hefur jafnframt spilað hjá Víkingi og Keflavík.