Fotbolti.net
01.07.26 - 12:30
Kári Snorrason

Fara Akureyrarliðin saman niður?

Frá leik Þórs og KA fyrr í sumar.

Frá leik Þórs og KA fyrr í sumar.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

„Ef FH rífur sig í gang og ekkert gerist hjá KA þá sé ég það alveg gerast,“ sagði Haraldur Örn Haraldsson, stuðningsmaður KA, aðspurður í Innkastinu um hvort bæði Akureyrarliðin gætu fallið.

KA tapaði sínum fimmta deildarleik í röð á sunnudaginn er liðið heimsótti Stjörnuna. Í pistlaskrifum Víðis Sigurðssonar, sem birtust á Fótbolti.net í morgun, bendir Víðir á að með tapinu gegn Stjörnunni setti KA félagsmet. Þetta er í fyrsta skipti í sögu KA í efstu deild, frá árinu 1978, sem Akureyrarliðið tapar fimm leikjum í röð í deildinni.

Grannar KA í Þór hafa sömuleiðis ekki átt góðu gengi að fagna en liðið hefur einungis sótt eitt stig úr síðustu níu umferðum. Þór er á botni deildarinnar en KA er í 10. sæti með tíu stig, þremur stigum fyrir ofan FH og Þór.
KA keypti Danijel Dejan Djuric dýrum dómi í vetur sem hefur ekki staðið undir væntingum. Þá hefur Oliver Heiðarsson sömuleiðis ekki fundið taktinn.

Í Innkastinu var rætt um þær sögusagnir að KA ætlaði ekki að styrkja sig í glugganum. „Útskýringin hlýtur að vera sú að þeir séu búnir með peninginn,“ sagði Haraldur Örn.

Sömu sögu er ekki að segja af Þórsurum sem hafa verið orðaðir við marga leikmenn. Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, sagði við Fótbolta.net á dögunum að Þór ætlaði að reyna fá inn leikmann í hverja línu í komandi félagaskiptaglugga sem opnar 16. júlí.

Þeir voru síðast orðaðir við Damir Muminovic, leikmann Grindavíkur, í Dr. Football fyrr í dag. Þá hafa þeir jafnframt reynt við Árna Vilhjálmsson og Guðmund Andra Tryggvason, sem er farinn í FH. Greint hefur verið frá því að Aron Einar Gunnarsson hafi skrifað undir samning við uppeldisfélagið og yrði það gríðarlegur liðsstyrkur.

Ef horft er á úrslit síðustu fimm leikja er KA-liðið með verstu uppskeruna, núll stig. Þórsarar eru þar fyrir ofan með eitt stig. Næstu lið fyrir ofan Akureyrarliðin eru Valur með fjögur stig og FH með fimm stig.
KA aldrei tapað fimm deildarleikjum í röð.

KA aldrei tapað fimm deildarleikjum í röð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ætla styrkja sig í hverri línu.

Ætla styrkja sig í hverri línu.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Innkastið - Hemmi rekinn, Akureyri í frjálsu falli og Blikar nálgast bikar

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.15+3840
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik15+826
5Keflavík15-419
6Valur16-619
7ÍBV15-716
8Stjarnan15-815
9ÍA15-1215
10KA15-814
11FH15-1112
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.