Martínez íhugar að hætta með landsliðinu

Emiliano Martínez.

Mynd: EPA

Emiliano Martínez.

Mynd: EPA
Argentínski markvörðurinn Emi Martínez segist vera að íhuga það að leggja landsliðshanskana á hilluna eftir að Argentína tapaði 1-0 gegn Spáni í úrslitaleik HM.
Martínez er 33 ára og hefur leikið 67 landsleiki. Hann vann HM með Argentínu 2022 og fékk þá gullhanskann sem besti markvörður mótsins.
Martínez er 33 ára og hefur leikið 67 landsleiki. Hann vann HM með Argentínu 2022 og fékk þá gullhanskann sem besti markvörður mótsins.
„Ég átti mér þann draum að vinna mótið aftur, mig dreymdi um að koma aftur með bikarinn til Argentínu. Sannleikurinn er sá að það er erfitt að útskýra þetta en það er margt að skoða í framhaldinu, meðal annars hvort það sé rétti tíminn til að stíga til hliðar," segir Martínez í færslu á Instagram.
Martínez vann Yashin bikarinn sem besti markvörður heims á Ballon d'Or gullboltahátíðunum 2023 og 2024. Hann hefur spilað fyrir Aston Villa síðan 2020 en hefur verið orðaður við Juventus á Ítalíu í sumar.