Mögnuð endurkoma eftir mjög erfið meiðsli

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Omar Sowe hefur komið við sögu í fjórum síðustu leikjum með ÍBV eftir að hafa verið frá í rúmt ár vegna hnémeiðsla. Framherjinn sleit krossband í maí í fyrra.
Í leikjunum fjórum hefur Omar skorað tvö mörk og átti risaþátt í einu sjálfsmarki. Í eina leiknum sem hann kom ekki að marki, gegn Stjörnunni, gerði hann sterkt tilkall til vítaspyrnu en fékk ekki. Hann hefur alls spilað 95 mínútur á tímabilinu.

TENGT EFNI
Omar Sowe: Voru eins og Batman og Superman í þessu ferli
Omar er 25 ára og spilaði 45 mínútur gegn FH á sunnudag. Hann skoraði strax eftir um 50 sekúndur af seinni hálfleiknum.
„Omar eins og þú mögulega veist var meiddur lengi og er gæða leikmaður. Hann kemur með helling fyrir okkur, þurfti bara einhverjar 60 sekúndur til að skora. Sérstaklega á þessari tegund af velli (grasvelli) þá er hann ekki alveg tilbúinn," sagði Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, þegar hann var spurður út í Omar eftir leikinn gegn FH.
ÍBV er án taps í síðustu fimm leikjum og tekur næst á móti Val á laugardag.