Omar Sowe sneri aftur á völlinn síðasta sunnudag þegar hann innsiglaði stórsigur ÍBV á Keflavík í Bestu deildinni. Sigurinn var sá fyrsti hjá Eyjamönnum á tímabilinu og leikurinn var sá fyrsti hjá Omari í rúmt ár.
Framherjinn, sem kom til ÍBV frá Leikni fyrir síðasta tímabil, ræddi við Fótbolta.net um endurkomuna á völlinn.
Framherjinn, sem kom til ÍBV frá Leikni fyrir síðasta tímabil, ræddi við Fótbolta.net um endurkomuna á völlinn.
Lestu um leikinn: ÍBV 6 - 1 Keflavík
Mjög heppinn að hafa fengið hjálp frá þeim
„Ég sleit krossband í maí í fyrra og fór í aðgerð á hné seint í júní. Það þurfti að laga krossbandið og fleira í hnénu. Endurkoman var held ég frekar einföld, það er alltaf ákveðið ferli sem þarf að fylgja þegar maður kemur til baka eftir krossbandsslit. Endurhæfingin er auðvitað enn í gangi þar til ég kemst í 90 mínútna leikform. Þetta tók 10-11 mánuði og allt gekk eins vel og hægt var að vona miðað við stöðuna. Sjúkraþjálfarinn minn í Orkuhúsinu, Ásmundur Arnarsson, á mestu þakkirnar skilið fyrir hans hjálp. Hann er toppmaður og hjálpaði mér frá byrjun til enda."
„Það eru margir sem voru til staðar fyrir mig á erfiðum tíma á mínum ferli og þau vita hversu dýrmætt það var fyrir mig. En ég verð líka að nefna Ella (Elías Árni Jónsson, styrktarþjálfari ÍBV) sem er líka lykilmaður í því að ég sé mættur til baka. Þeir (Ásmundur og Elías) voru eins og Batman og Superman teymi sem ég var með, ég lít á þá báða sem hetjur, annar þeirra hjálpaði mér að styrkja hnéð og hinn hjálpaði til við að halda því stöðugu og í góðu standi. Ég tel mig mjög heppinn að hafa fengið hjálp frá þeim," segir Omar.
Fannst hann klár í mínútu fyrir fjórum mánuðum
Hvernig hafa síðustu vikur verið, hvenær leið þér eins og þú værir 100% klár í að spila nokkrar mínútur?
„Mér leið vel síðustu fjóra mánuði myndi ég segja, leið eins og ég gæti spilað allavega fimm mínútur eftir hverja æfingu. En svo fór ég til Ásmundar og hann sýndi mér að ég gæti ekki spilað. Mér leið vel í skrokknum og andlega, en það var best að bíða og styrkja sig frekar."
Bara fótbolti
Hvernig var tilfinningin að fá kallið frá Linta í leiknum gegn Keflavík?
„Ég var tilbúinn að fara aftur á völlinn, þetta voru engar tilfinningar, þetta snerist bara um að mæta aftur til starfa. Ég hugsaði þetta sem próf fyrir mig að sjá hversu gott formið er, á hvaða stað ég væri að byrja og svo var þetta bara fótbolti."
Skoraði týpískt Omar Sowe mark
Hvernig var upplifunin af markinu?
„Ég myndi segja að þetta væri týpiskt mark hjá mér, hlaup aftur fyrir vörnina og svo klárað. Þetta er minn helsti styrkleiki sem framherji og það var gott að finna að ekkert hefur breyst. Bjarki (Björn Gunnarsson) átti sendingu sem hann einn getur fundið. Ég kallaði hann Özil um daginn."
Lofaði henni marki
Hann fagnaði sérstaklega með einum aðila. Guðrún Ágústa Möller er í stjórn ÍBV og hugsar hún vel um strákana í liðinu.
„Ég fagnaði með Gurru, ég hafði sagt henni áður að ég myndi skora og knúsa hana. Hún lét mig lofa sér því að ég myndi skora, þannig ég skuldaði henni fyrir hvatningu."
Varð strax þreyttur
Hvernig er standið núna?
„Ef ég á að vera hreinskilinn þá var ég orðinn þreyttur eftir fjórar mínútur. Fyrstu tíu mínúturnar fyrir varamenn geta verið erfiðar, þú getur lent á vegg, en þú þarft að komast í gegnum þær og klára svo restina af leiknum. Það var erfitt að komast í gegnum það, en ég var klár í að elta þessa bolta og reyna skora."
Hvert er markmiðið á þessu tímabili?
„Mitt markmið er að spila og njóta lífsins aftur, mörkin munu koma og fara, en ég vil sýna sama ríkjandi hugarfarið og ég var með."
Verður ekki hissa þegar sigrarnir fara koma
Hvað gefur sigurinn gegn Keflavík liðinu?
„Hann gefur mér persónulega ekki mikið, við vitum að við erum gott lið sem byrjaði illa. Sigur gefur okkur sjálfstraust sem vantaði upp á til að opna á fleira frá okkur. Ég verð ekki hissa þegar þetta lið byrjar að vinna leiki."
Næsti leikur ÍBV verður gegn liðinu í sætinu fyrir ofan, útileikur gegn Þór. Hvað þarf ÍBV að gera til vinna þann leik?
„Ég von að fótboltaguðirnir verði góðir við okkur á þessu skriði sem við viljum ná. Eins og með alla leiki undirbúum við okkur eins vel og við getum sem lið og mætum klárir til leiks á leikdegi," segir Sowe.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Víkingur R. | 10 | 9 | 1 | 0 | 34 - 6 | +28 | 28 |
| 2. KR | 10 | 8 | 1 | 1 | 38 - 23 | +15 | 25 |
| 3. Fram | 9 | 6 | 2 | 1 | 25 - 16 | +9 | 20 |
| 4. Breiðablik | 9 | 4 | 3 | 2 | 22 - 15 | +7 | 15 |
| 5. Valur | 10 | 5 | 0 | 5 | 19 - 22 | -3 | 15 |
| 6. ÍA | 9 | 3 | 3 | 3 | 12 - 16 | -4 | 12 |
| 7. Keflavík | 9 | 3 | 2 | 4 | 12 - 18 | -6 | 11 |
| 8. KA | 9 | 3 | 1 | 5 | 12 - 15 | -3 | 10 |
| 9. Stjarnan | 10 | 3 | 1 | 6 | 18 - 22 | -4 | 10 |
| 10. Þór | 9 | 2 | 0 | 7 | 7 - 23 | -16 | 6 |
| 11. ÍBV | 9 | 1 | 2 | 6 | 14 - 23 | -9 | 5 |
| 12. FH | 9 | 0 | 2 | 7 | 12 - 26 | -14 | 2 |



