Fotbolti.net
01.07.26 - 10:00
Elvar Geir Magnússon

Stærðfræðineminn sem stórliðin girnast

Ayyoub Bouaddi (númer 6) í baráttu við Che Adams, leikmann Skotlands.

Ayyoub Bouaddi (númer 6) í baráttu við Che Adams, leikmann Skotlands.

Canon

Mynd: EPA

Hinn 18 ára gamli Ayyoub Bouaddi hjá Marokkó er það ungstirni sem hefur skinið hvað skærast á HM, alveg frá því að hann var valinn maður leiksins í 1-1 jafntefli gegn Brasilíu í fyrstu umferð riðlakeppninnar.

Á miðsvæðinu mætti Bouaddi reynslumikilli miðju Brasilíu sem var skipuð Casemiro, Bruno Guimaraes og Lucas Paqueta. En það var marokkóski táningurinn sem var umferðarstjórinn á svæðinu. Hann stýrði tempóinu, kláraði sendingar undir pressu og var alltaf að finna svæði milli línanna.

Ekki furða að mörg stórlið Evrópu girnast þennan unga leikmann Lille. Í slúðurpakkanum í morgun er sagt að Arsenal, Manchester City, Manchester United og Bayern München vilji öll fá hann í sínar raðir.
Sáuð þið hann spila gegn Brasilíu?
TENGT EFNI

Sáuð þið hann spila gegn Brasilíu?

Fæddur í Frakklandi
Bouaddi fæddist árið 2007 í Frakklandi en foreldrar hans eru marokkóskir. Árið 2021 fór hann í akademíu Lille og hefur tekið hröðum framförum. Sextán ára gamall varð hann yngstur til að spila Evrópuleik þegar hann lék með Lille í Sambandsdeildinni.

Leikskilningur hans er í fremstu röð og eitt hans helsta vopn; hvernig hann skilur rými, timasetningar og möguleika á opnunum.

Öryggisnetið mitt
Fótboltinn á ekki hug hans allan, ekki alveg. Hann er framúrskarandi námsmaður sem hefur fengið öflugar einkunnir og stundar fjarnám í stærðfræði við háskóla í Marseille.

„Stærðfræðin er öryggisnet mitt,“ hefur Bouaddi sagt. „Fótboltaferlinum fylgir óvissa. Námið heldur huganum virkum.“

Meðan liðsfélagar hans í akademíu Lille voru margir að spila tölvuleiki utan æfinga var Bouaddi að læra og sinna heimanáminu. Árið 2023 vann hann ræðukeppni milli akademíuleikmanna í Frakklandi. Hans ræða var um það af hverju það skiptir ekki minna máli hvernig fótbolti er spilaður en að ná úrslitum.
Ayyoub Bouaddi.

Ayyoub Bouaddi.

Canon

Mynd: EPA

Í leik með Lille.

Í leik með Lille.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.