Fotbolti.net
01.07.26 - 12:06
Elvar Geir Magnússon

Þrír létust í fagnaðarlátum í Mexíkóborg

Múgur og margmenni þustu út á götur borgarinnar.

Múgur og margmenni þustu út á götur borgarinnar.

Canon

Mynd: EPA

Þrír einstaklingar urðu undir og létust í troðningi í Mexíkóborg þegar fagnaðarlæti stóðu yfir eftir 2-0 sigur Mexíkó á Ekvador í 32-liða úrslitum HM.

Nítján ára gömul kona er meðal þeirra sem létust, hinir einstaklingarnir eru 48 ára kvenmaður og 44 ára karlmaður.
HM: Fyrsti sigur Mexíkó í útsláttarkeppni í 40 ár
TENGT EFNI

HM: Fyrsti sigur Mexíkó í útsláttarkeppni í 40 ár

Yfir milljón manns fóru út á götur Mexíkóborgar til að fagna. Flestir í kringum sjálfstæðisengilinn, styttu í miðbænum.

Clara Brugada Molina, yfirmaður borgarstjórnarinnar, vottaði fjölskyldum fórnarlambanna „einlægustu samúðarkveðjur“ sínar og lofaði stuðningi.

<>„Eftir að hafa framkvæmt fyrstu hjálp og endurlífgun reynd á sjúklingunum voru þeir fluttir á sjúkrahús til sérhæfðrar læknismeðferðar,“ að sögn heilbrigðisyfirvalda borgarinnar. Staðfest hefur verið að allir þrír hafi látist af völdum köfnunar.

Þrír létust í fagnaðarlátum í Mexíkóborg
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.