01.08.05 - 17:27
Walter Samuel til Inter (Staðfest)

Ítalska liðið Inter Milan hefur fest kaup á Argentínska varnarmanninum Walter Samuel frá Real Madrid. Í yfirlýsingu á heimasíðu Inter segir að hann hafi skrifað undir fjögurra ára samning en hann lék áður með Roma á Ítalíu áður en hann færði sig um set til Spánar.
Hann er 27 ára gamall og varð Ítalíumeistari árið 2001 með Roma. Inter eru einnig taldir vera í samningaviðræðurm við Luis Figo en þeir hafa nú þegar fengið Santiago Solari til sín frá Real Madrid. Samuel var aðeins í eitt ár hjá Real en hann kostaði liðið hvorki meira né minna en 25 milljónir Evra.
Samuel náði sér ekki á strik á Spáni þrátt fyrir fínar frammistöður inn á milli. Hann náði þó aldrei að verða vinsæll meðal kröfuharðra stuðningsmanna Real en þetta opnar dyrnar fyrir Jonathan Woodgate sem loksins getur farið að spila fyrir liðið.