Fotbolti.net
01.08.05 - 17:33

Alpay til Köln (Staðfest)

Beckham og Alpay

Beckham og Alpay

Canon
Tyrkenski varnarmaðurinn Alpay Ozalan hefur skrifað undir eins árs samning við þýska liðið Köln. Þeirr unnu 2. deildina í Þýskalandi á síðustu leiktíð og ætla sér að koma sterkir upp í Bundeslíguna. Hann er orðinn 32 ára gamall og hefur spilað 86 landsleiki en hann er þekktur skaphundur og er talinn mjög erfiður við að eiga.
Hann var rekinn frá Urawa Red Diamonds í júní fyrir að fá þrjú rauð spjöld í sjö leikjum en þá átti hann sex mánuði eftir af samningi sínum við Japanska liðið. Hann lenti svo upp á kant við David Beckham eins og frægt er orðið í landsleik Englands og Tyrklands eftir að Beckham brenndi af vítaspyrnu.

Alpay setti fingur í andlitið á Beckham og hélt því svo fram að Beckham hefði hrækt á sig. Hann varð í kjölfarið ótrúlega óvinsæll á Englandi og á endanum fór hann með skottið á milli lappanna frá Aston Villa. Þýska deildin hefst á föstudaginn en Köln hefja leik á laugardaginn gegn Mainz sem mæta Keflavík í UEFA bikarkeppninni þann 11. ágúst.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.