Fotbolti.net
01.08.06 - 05:54
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Carrick til Manchester United (Staðfest)

Carrick til Manchester United (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hafa gengið frá kaupunum á miðjumanninum Michael Carrick frá Tottenham en hann stóðst læknisskoðun hjá félaginu eins og við sögðum frá í gær.
Talið er að verðmiðinn sé 18,6 milljónir punda og þar af 13 milljónir punda borgaðar strax til Spurs. Restin fer svo eftir árangri Man Utd, fjölda landsleikja hjá Carrick og þann tíma sem hann verður á Old Trafford.

Þessi 25 ára gamli enski landsliðsmaður verður síðan kynntur fyrir fjölmiðlum og stuðningsmönnum á miðvikudaginn og verður hann númer 16 en Roy Keane var einmitt sá sem var síðast með þá tölu.

,,Michael hefur staðist læknisskoðun og við ætlum að hafa blaðamannafund á miðvikudaginn held ég. Hann hefur komið sér vel fyrir, ég talaði við hann í dag. Ég sagði við hann að ég gæfi honum sextánuna og hann var í skýjunum með það,” sagði Ferguson.

,,Ég held að það sýni mikið hugrekki vegna þess að leikmemm verða stundum hjátrúafullir varðandi svona hluti en hann sagðist glaður taka við sextánunni.”
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.