Fotbolti.net
01.08.06 - 07:27
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ítalska deildin

Tommasi til Levante (Staðfest)

Tommasi spilaði 234 leiki í Serie A

Tommasi spilaði 234 leiki í Serie A

Canon

Mynd: Getty Images

Levante hafa loksins gengið frá kaupunum á ítalska miðjumanninum Damiano Tommasi frá Roma.
Tommasi, sem er 32 ára gamall, kemur á frjálsri sölu eftir að hafa farið frá Roma fyrr í sumar og gerir tveggja ára samning við Levante sem komst upp í efstu deild núna í vor.

,,Undirskriftin mín fyrir Levante kemur með nýja reynslu fyrir mig. Ég er mjög ánægður og mig hlakkar til að byrja með nýju félagi,” sagði Tommasi.

Levante hafa verið uppteknir á leikmannamarkaðnum í sumar og fengið nokkur stór nöfn til félagsins og þeirra á meðal Laurent Robert og Frederic Dehu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.