Fotbolti.net
01.08.07 - 06:30
Margrét Lára Viðarsdóttir

Guðlaug Jónsdóttir og Pálína Bragadóttir í Völsung (Staðfest)

Guðlaug Jónsdóttir er gengið í raðir Völsungs

Guðlaug Jónsdóttir er gengið í raðir Völsungs

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Kvennaboltinn
Hin 36 ára gamla Guðlaug Jónsdóttir er okkur fótboltaáhugamönnum ekki ókunn en hún gekk í gær í raðir Völsungs á Húsavík. Völsungur er sem stendur öruggar í 1 sæti B riðils 1. deildar. Ásamt Guðlaugu hefur Pálína Bragadóttir ákveðið að ganga til liðs við félagið en Pálina er einmitt fædd og uppalin á Húsavík.
Guðlaug hætti knattspyrnuiðkun af krafti síðastliðið haust og spilaði meðal annars alla landsleiki Íslands á síðasta ári. Guðlaug hefur hins vegar haldið sér í góðu formi með því að æfa og spila með Old girls liðið KR í vetur og vor.

Guðlaug er hokin af reynslu og hefur meðal annars spilað með KR, Breiðablik og danska stórliðinu Brondby. Hún hefur spilað 56 landsleiki og skorað í þeim 2 mörk.

Pálína Bragadóttir hefur ekki spilað knattspyrnu tvö síðastliðin ár. Síðast spilaði Pálína með ÍBV tímabilið 2005. Hún er sterkur og góður varnarmaður sem mun án efa styrkja lið Húsavíkur.

Pálína er Völsungi ekki ókunn en hún er fædd og uppalin á Húsavík og spilaði alla yngri flokka með félaginu en hélt til vesturbæjarliðsins KR árið 1998.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.