Fotbolti.net
01.08.07 - 11:57
Magnús Valur Böðvarsson

Andy Griffin til Derby (Staðfest)

Griffin í baráttu við Fernando Morientes

Griffin í baráttu við Fernando Morientes

Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar Derby County hafa fest kaup á Andy Griffin varnarmanni Portsmouth en leikmaðurinn skrifaði undir þriggja ára samning við félagið.
Portsmouth voru tilbúnir að leyfa Grifin að fara þar sem hann var aftarlega í goggunarröðinni hjá félaginu.

Derby hafði síðan betur gegn Stoke í baráttunni um að fá hinn 28 ára gamla Griffin sem lék á sínum tíma með Newcastle.

,,Andy er frábær leikmaður sem hefur mjög gott viðhorf. Eins og Andy Todd þá kemur hann með reynslu í hópinn. Ég trúi að Andy Griffin eigi góð ár framundan," sagði Billy Davies stjóri Derby.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.