Fotbolti.net
01.08.26 - 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
Franski boltinn

Búnir að sækja arftaka fyrir Akliouche (Staðfest)

Búnir að sækja arftaka fyrir Akliouche (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

AS Mónakó er búið að kaupa nýjan kantmann sem á að taka við keflinu af Magnhes Akliouche sem virðist vera á leið til Evrópumeistara PSG.
Ungur Frakki til Man City (Staðfest) - Lánaður til Mónakó
TENGT EFNI

Ungur Frakki til Man City (Staðfest) - Lánaður til Mónakó

Akliouche er mjög eftirsóttur eftir að hafa verið lykilmaður í liði Mónakó á síðustu leiktíð. Hann komst í landsliðshóp Frakklands fyrir HM í sumar og borgar PSG rúmlega 50 milljónir evra til að festa kaup á honum.

Matthis Abline á að taka við keflinu en hann er 23 ára gamall og var mikilvægur hlekkur upp unglingalandslið Frakklands, með 22 mörk í 45 leikjum.

Hann kom með beinum hætti að 15 mörkum í 34 leikjum með Nantes á síðustu leiktíð. Mónakó borgar um 30 milljónir með árangurstengdum aukagreiðslum.

Mónakó er einnig búið að krækja í kantmanninn efnilega Mathys Detourbet á láni frá Manchester City í sumarglugganum, auk þess að festa kaup á vinstri bakverðinum Flávio Nazinho.

Þar að auki er búið að ganga frá kaupum á kantmanninum Ansu Fati sem lék með liðinu á láni frá Barcelona á síðustu leiktíð.

Skotmark Liverpool nálgast PSG
TENGT EFNI

Skotmark Liverpool nálgast PSG



Búnir að sækja arftaka fyrir Akliouche (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.