Fotbolti.net
01.08.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Spænski boltinn

Ter Stegen kynntur hjá Ajax um helgina

Ter Stegen kynntur hjá Ajax um helgina
Canon

Mynd: EPA

Þýski landsliðsmarkvörðurinn Marc-André ter Stegen verður kynntur til leiks sem nýr markvörður Ajax um helgina.
Barcelona og Ajax ekki að ná samkomulagi
TENGT EFNI

Barcelona og Ajax ekki að ná samkomulagi

Ter Stegen fer til félagsins á lánssamningi frá Spánarmeisturum Barcelona, þar sem hann hefur leikið í rúman áratug og borið nokkrum sinnum fyrirliðabandið.

Ter Stegen er 34 ára gamall og var aðalmarkvörður Barcelona í átta ár áður en hann varð fyrir meiðslum. Hann vill ekki vera varaskeifa fyrir Joan García og fer því til Ajax.

Ter Stegen er með tvö ár eftir af samningi sínum hjá Barcelona. Hann býr yfir gífurlegri reynslu og gæti hjálpað Ajax að endurheimta sæti sitt á toppi hollensku deildarinnar á næstu leiktíð.

Hann lék 44 A-landsleiki fyrir Þýskaland á ferlinum þrátt fyrir að vera í baráttu við Manuel Neuer um byrjunarliðssætið.

Ajax er að styrkja hópinn sinn til muna eftir nokkur vonbrigðatímabil í röð bæði í Hollandi og Evrópu.

Tolu Arokodare og Julian Brandt eru nýlega búnir að skrifa undir hjá Ajax og nú bætist Ter Stegen einnig við leikmannahópinn. Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn á skiptin.

Valdi Ajax framyfir Leeds (Staðfest)
TENGT EFNI

Valdi Ajax framyfir Leeds (Staðfest)

Ter Stegen kynntur hjá Ajax um helgina
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.