Fotbolti.net
01.09.05 - 06:50

Curtis Davis til WBA (Staðfest)

Curtis Davis til WBA (Staðfest)
Canon
WBA hafa fengið Curtis Davis til sín fyrir 3 milljónir punda. Hinn tvítugi Davis kom frá Luton og er í miklum metum á Englandi en hann skrifaði undir fjögurra ára samning við WBA og varð um leið dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins.
,,Ég trúi því að hann eigi mjög bjarta framtíð fyrir sér í boltanum" sagði Bryan Robson stjóri liðsins um Davis á heimasíðu félagsins. ,,Curtis er einn af allra bestu ungum miðvörðum sem ég hef séð lengi."bætti Robson við.

WBA hafa því eytt níu milljónum punda í sumar en fyrir komu þeir Nathan Ellington, Darren Carter, Diomansy Kamara, Steve Watson auk lánsmannsins Chris Kirkland.

Davis kom til Luton 16 ára gamall og spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið tveim árum seinna. Hann lék 62 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim tvö mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.