01.09.05 - 15:54
Arnar Daði Arnarsson
Tottenham krækti í Rasiak (Staðfest)

Tottenham náði að kaupa framherjann Grzegorz Rasiak áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gær en hann er 26 ára framherji og lék áður með Derby.
Martin Jol stjóri Tottenham hafði þetta að segja: ,,Rasiak er stór og markheppinn leikmaður. Hann er duglegur og heiðarlegur leikmaður."
Wolves var búið að bjóða að því er talið er 2,25 milljónir punda í þennan Pólverja en leikmaðurinn náði ekki samningum við félagið og því er hann nú farinn til Tottenham. Sunderland höfðu einnig áhuga á að fá Rasiak til sín fyrr í sumar en ekkert varð úr því.