01.09.05 - 11:16
Magnús Már Einarsson
Doni til Mallorca (Staðfest)




Real Mallorca náði að kaupa miðjumanninn Cristiano Doni frá Sampdoria rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gær. Doni sem er 32 ára verður kynntur sem nýjasti liðsmaður Mallorca síðar í dag.
Doni sem var í ítalska landsliðinu á HM 2002 hefur verið hjá Sampdoria síðastliðin tvö ár eftir fimm ára dvöl hjá Atalanta. Doni er ellefti leikmaðurinn sem Hector Cuper fékk í sumar en sóknarmennirnir Lampros Choutos og Yordi komu einnig til liðsins í gær frá Inter og Getafe.
Mallorca sem rétt slapp við fall á síðustu leiktíð tapaði fyrsta leiknum á þessum tímabili 1-0 fyrir Deportivo La Coruna um síðustu helgi.
Mallorca sem rétt slapp við fall á síðustu leiktíð tapaði fyrsta leiknum á þessum tímabili 1-0 fyrir Deportivo La Coruna um síðustu helgi.
