01.09.05 - 11:21
Magnús Már Einarsson
Mainz fékk Zidan (Staðfest)

Úr leik Keflavík og Mainz fyrir skömmu.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Úr leik Keflavík og Mainz fyrir skömmu.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Mainz sem sló Keflavík út úr Evrópukeppni Félagsliða á dögunum náði að fá framherjann Mohamed Zidan að láni frá Werder Bremen áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gær. Zidan sem er frá Egyptalandi kemur til Mainz á láni út þessa leiktíð og á að hjálpa liðinu að skora meira í þýsku Bundesligunni en liðinu hefur ekki gengið vel í því að undanförnuþ
Mainz fékk einnig brasilíska framherjann Romulo á láni frá Ituano í þessari viku en báðir leikmennirnir ættu að geta spilað gegn Hamburg SV í Bundesligunni um helgina.
Juergen Klopp þjálfari Mainz sagði: ,, Við héldum að það væri ekki mögulegt að fá Zidan sem og Romulo. Við erum ánægðir með að það hafðist."
Juergen Klopp þjálfari Mainz sagði: ,, Við héldum að það væri ekki mögulegt að fá Zidan sem og Romulo. Við erum ánægðir með að það hafðist."
