01.09.05 - 15:28
Magnús Már Einarsson
Coco til Livorno á láni (Staðfest)




Ítalska liðið Livorno fékk bakvörðinn Francesco Coco að láni frá Inter áður en félagaskiptaglugginn lokað í gær. Coco hefur verið að leita sér að öðru liði í sumar og lengi vel stefndi meðal annars í að hann færi til Newcastle.
Ajax og Olympiakos vildu bæði fá Coco sem ákvað hinsvegar að vera áfram í Serie A og ganga til liðs við Livorno en lánssamningurinn gildir út þetta tímnabil.
Þess má svo geta að Livorno fékk einnig markvörðinn Paolo Acebis frá Albinoleffe áður en félagaskiptaglugginn lokaði.
Þess má svo geta að Livorno fékk einnig markvörðinn Paolo Acebis frá Albinoleffe áður en félagaskiptaglugginn lokaði.
