01.09.05 - 15:58
Magnús Már Einarsson
Bernard til Rangers (Staðfest)




Franski vinstri bakvörðurinn Olivier Bernard hefur gert tveggja ára samning við Glasgow Rangers. Bernard sem er 25 ára skrifaði undir í dag en þar sem hann var án liðs gat hann farið til Rangers þrátt fyrir að búið sé að loka félagaskiptaglugganum.
Bernard sem fór frá Newcastle til Southampton fyrr á árinu hefur verið án liðs síðan í sumar en bæði Birmingham City og Bolton Wanderers vildu fá hann í sínar raðir.
Bernard er hinsvegar eins og fyrr segir kominn til Rangers þar sem hann mun leysa Michael Ball af en hann gekk til liðs við PSV Eindhoven í gær.
Bernard er hinsvegar eins og fyrr segir kominn til Rangers þar sem hann mun leysa Michael Ball af en hann gekk til liðs við PSV Eindhoven í gær.
