01.09.05 - 22:33
Hörður Snævar Jónsson
Gylfi Þór til Reading (Staðfest)

Gylfi situr hér í miðjunni ásamt formann Blika og föður sínum.

Mynd: Fótbolti.net-Hörður S Jónsson

Gylfi situr hér í miðjunni ásamt formann Blika og föður sínum.

Mynd: Fótbolti.net-Hörður S Jónsson
Gylfi Þór Sigurðsson leikmaður 3 flokks Breiðabliks hefur skrifað undir hjá 1.deildarliði Reading. Gylfi mun halda til Reading 1.október næstkomandi en hann gerði þriggja ára samnin við liðið. Gylfi hefur í nokkur skipti farið til reynslu hjá Reading og viltu þeir eftir dvöl hans nú síðast gera samning við hann.
Gylfi hefur einig verið undir smásjá Preston North End og greinilegt að hér er gríðalegt efni er hér á ferð. Gylfi mun þó klára tímabilið hér hjá 3.flokki Breiðabliks áður en hann fer út en liðið er einmitt komið í bikarúrslit og undanúrslit á Íslandsmótinu.
