01.09.06 - 12:23
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ailton fór í Rauðu Stjörnuna (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilíski sóknarmaðurinn Ailton hefur gengið til liðs við Rauðu Stjörnuna í Belgrade.
Hann var markahæsti leikmaður þýsku deildarinnar með Werder Bremen árið 2003-04 en síðan þá hefur hann ekki fundið sig almennilega og spilað með Schalke, Besiktas og Hamburg.
Þessi 33 ára gamli leikmaður kom til Belgrade í gærkvöldi og skrifaði undir samning við félagið rétt áður en félagsskiptaglugginn lokaði.
Þá gekk Segundo Castillo, sem lék með Ekvador á HM í sumar, einnig til liðs við félagið.