01.09.07 - 06:00
Sindri Þór Þorgeirsson
Palacios til Birmingham (Staðfest)

Ég þekki mann frá Hondúras, gæti Mourinho verið að segja Bruce

Mynd: Getty Images

Ég þekki mann frá Hondúras, gæti Mourinho verið að segja Bruce

Mynd: Getty Images
Birmingham fengu í gær til sín miðjumanninn Wilson Palacios frá Hondúras. Hann kemur frá liði Olimpia og verður fyrst um sinn á láni fram í desember.
Wilson Palacios hóf feril sinn hjá Club Deportivo Victoria í heimalandinu áður en hann fór til Olimpia.
Hann er 23 ára og hefur leikið 40 landsleiki fyrir landslið Hondúras. Hann var til reynslu hjá Arsenal en Arsene Wenger ákvað að hafna því að fá hann vegna of margra miðjumanna hjá klúbbnum.
Hann er 23 ára og hefur leikið 40 landsleiki fyrir landslið Hondúras. Hann var til reynslu hjá Arsenal en Arsene Wenger ákvað að hafna því að fá hann vegna of margra miðjumanna hjá klúbbnum.
Heimild: BBC
