Fotbolti.net
01.09.26 - 12:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ahanor spilar með Palace í vetur (Staðfest) - Fer svo til Chelsea

Ahanor spilar með Palace í vetur (Staðfest) - Fer svo til Chelsea
Canon

Mynd: EPA

Honest Ahanor er genginn í raðir Crystal Palace og mun leika með liðinu á láni á tímabilinu.

Hann er lánaður frá Atalanta en mun næsta sumar ganga í raðir Chelsea sem kláraði kaup á honum í dag.

Ástæðan fyrir því að hann er ekki lánaður frá Chelsea til Palace er sú að Axel Disasi er á láni hjá Palace frá Chelsea og mega úrvalsdeildarfélög lána fleiri en einn frá sér til sama félagsins.
Chelsea kaupir þann heiðarlega (Staðfest) - Klókir í skráningu
TENGT EFNI

Chelsea kaupir þann heiðarlega (Staðfest) - Klókir í skráningu

Ahanor er örvfættur miðvörður sem kom upp í gegnum akademíu Genoa og lék sinn fyrsta leik í ítölsku úrvalsdeildinni 16 ára. Hann spilaði sex leiki með Genoa áður en Atalanta fékk hann í sínar raðir. Hann spilaði 35 leiki í öllum keppnum með Atalanta og þar af voru níu leikir í Meistaradeildinni.

Hann á að baki tvo landsleiki fyrir Ítalíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.