Fotbolti.net
01.09.26 - 07:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Kröftugur miðjumaður snýr aftur til Atalanta (Staðfest)

Kröftugur miðjumaður snýr aftur til Atalanta (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn kröftugi Franck Kessié er kominn aftur til Atalanta í ítalska boltanum eftir að hafa leikið fyrir félagið tímabilið 2016-17.
Franck Kessié fer til Atalanta
TENGT EFNI

Franck Kessié fer til Atalanta

Kessié braust fram í sviðsljósið sem leikmaður Atalanta og var fenginn yfir til AC Milan eftir frábært tímabil með nágrannaliðinu.

Hann hefur síðan þá leikið fyrir Barcelona og Al-Ahli og er því hokinn reynslu, með 106 landsleiki að baki fyrir Fílabeinsströndina.

Kessié er 29 ára gamall og kemur til Atalanta á frjálsri sölu. Hann skrifar undir þriggja ára samning með möguleika á auka ári.

Hann kom með beinum hætti að 41 marki í 119 leikjum á þremur árum með Al-Ahli í Sádi-Arabíu. Hann á að fylla í skarðið sem Marten de Roon skilur eftir sig á miðjunni.

Kröftugur miðjumaður snýr aftur til Atalanta (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.