29.08.26 - 16:44
Ívan Guðjón Baldursson
Franck Kessié fer til Atalanta

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Miðjumaðurinn þaulreyndi Franck Kessié er á leið aftur í ítölsku deildina þar sem hann skrifar undir samning við Atalanta.

TENGT EFNI
Juventus leiðir baráttuna um Kessie
Kessié er 29 ára gamall og lék meðal annars fyrir AC Milan og Barcelona áður en hann fór til Al-Ahli í þrjú ár. Hann kemur á frjálsri sölu frá Sádi-Arabíu.
Nú hefur Fílbeinsstrendingurinn ákveðið að snúa aftur til Evrópu og voru ýmis ítölsk félagslið sem reyndu að tryggja sér krafta hans.
Kessié tókst ekki að semja við Juventus og var hans fyrrum félag Atalanta fljótt að grípa tækifærið. Kessié, sem á yfir 100 landsleiki að baki fyrir Fílabeinsströndina, var hjá Atalanta frá 2014 til 2017, þar til hann var seldur til nágrannanna í AC Milan.
Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn á félagaskiptin.