01.09.26 - 11:21
Kári Snorrason
„Ömurleg framkoma okkar Víkinga - Til skammar!“

Frá Meistaravöllum í morgun.

Mynd: Kári Snorrason

Málningaföturnar tvær.

Mynd: Kári Snorrason

Frá Meistaravöllum í morgun.

Mynd: Kári Snorrason
Stuðningsmenn Víkings framkvæmdu skemmdarverk á Meistaravöllum í nótt er þeir máluðu bæði stúku og varamannaskýli KR rauðum lit.
Fótbolti.net hefur fjallað um málið þar sem rætt var við Pálma Rafn Pálmason, framkvæmdastjóra KR.

TENGT EFNI
Víkingar máluðu Meistaravelli rauða - „Algjörlega ólíðandi og óþolandi“
Í athugasemdarfærslum undir fréttinni á samfélagsmiðlinum Facebook hafa ýmsir stuðningsmenn Víkings fordæmt eigin stuðningsmenn.
Þar á meðal er Haraldur Haraldsson sem var framkvæmdarstjóri félagsins til fjórtán ára. „Ömurleg framkoma okkar Víkinga. Til skammar!,“ ritaði Haraldur.
Þá sagði Tómas Þór Þórðarson skemmdarverkin sömuleiðis vera til skammar. „Til háborinnar skammar fyrir félagið okkar! Þetta er svo langt frá því að vera í lagi,“ skrifaði Tómas.
Fleiri athugasemdir má sjá undir færslu Fótbolta.net á Facebook sem er hér að neðan.