Fotbolti.net
01.09.26 - 10:42
Kári Snorrason

Víkingar máluðu Meistaravelli rauða - „Algjörlega ólíðandi og óþolandi“

Víkingar máluðu Meistaravelli rauða - „Algjörlega ólíðandi og óþolandi“
Canon

Mynd: Hilmar Þór

Stuðningsmenn Víkings fóru á Meistaravelli í nótt og máluðu bæði stúku og varamannaskýli KR rauð. Liðin mætast klukkan 17:30 í sannkölluðum toppslag.

Fótbolti.net ræddi við Pálma Rafn Pálmason, framkvæmdastjóra KR, í morgun og spurði hann út í skemmdarverkin.

„Það er búið að mála vegg í stúkunni og varamannaskýlin. Það er algjörlega óþolandi að þurfa að eyða deginum í að hreinsa upp eftir svona vitleysinga. Það er nóg af öðru að gera fyrir svona leik. Þetta er algjörlega ólíðandi og óþolandi,“ segir Pálmi.
Pálmi segir málninguna hafa farið utan á bæði varamannaskýlin og inn í skýli KR-inga ásamt því að málað var inn í stúkuna á Meistaravöllum og skrifað 'Vikes'. „Það sést greinilega hverjir hafa verið að verki hérna,“ segir Pálmi.

Aðspurður um hvort tjónið sé töluvert fjárhagslega segir Pálmi það verða að koma í ljós en lögreglan hafi verið kölluð til í morgun.

„Við verðum að reyna að hafa þetta þokkalegt fyrir leikinn í dag. Við erum að gera það sem við getum til þess að hafa þetta í lagi. Það er spurning hversu langt það nær,“ segir Pálmi að lokum.

Undirritaður gerði sér leið á Meistaravelli í morgun þar sem unnið var hörðum höndum að því að þvo málninguna af bæði stúkunni og varamannaskýlum.

Málningin var að mestu farin en greinileg ummerki voru um skemmdarverkin sem og tómar málningarfötur sem stuðningsmenn Víkings skildu eftir sig.
Víkingar máluðu Meistaravelli rauða - „Algjörlega ólíðandi og óþolandi“
Canon

Mynd: Hilmar Þór

Víkingar máluðu Meistaravelli rauða - „Algjörlega ólíðandi og óþolandi“
Canon

Mynd: Hilmar Þór

Víkingar máluðu Meistaravelli rauða - „Algjörlega ólíðandi og óþolandi“
Canon

Mynd: Kári Snorrason

Víkingar máluðu Meistaravelli rauða - „Algjörlega ólíðandi og óþolandi“
Canon

Mynd: Kári Snorrason

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.