01.09.26 - 23:51
Brynjar Ingi Erluson
Timber til Palace (Staðfest)

Mynd: Crystal Palace

Mynd: Crystal Palace
Hollenski miðjumaðurinn Quinten Timber hefur samið við Crystal Palace á Englandi, en hann kemur frá Marseille í Frakklandi.

TENGT EFNI
Tvíburabróðir Arsenal-mannsins á leið til Palace?
Palace fékk aukinn tíma til að ganga frá félagaskiptunum eftir að hafa skilað inn félagaskiptablaði áður en glugginn lokaði.
Timber er 25 ára og kemur til Palace fyrir um tólf milljónir punda. Hann skrifaði undir langtímasamning við félagið og er tvíburabróðir Jurrien Timber sem leikur með Englandsmeisturum Arsenal og sameinast þeir því í Lundúnum.
Miðjumaðurinn á að baki 13 A-landsleiki og eitt mark fyrir Holland.

Timber is next.
— Crystal Palace F.C. (@CPFC) September 1, 2026
We are delighted to confirm the signing of Netherlands international Quinten Timber ?????? pic.twitter.com/NiV8YoFC6i