01.10.06 - 17:04
Magnús Már Einarsson
Ásgeir Elíasson og Sigurður Þórir taka við ÍR (Staðfest)

Frá undirskriftinni í dag.

Mynd: ÍR

Frá undirskriftinni í dag.

Mynd: ÍR
ÍR úr annarri deild hefur ráðið þá Ásgeir Elíasson og Sigurður Þóri Þorsteinsson sem þjálfara meistara og annars flokks karla en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Ásgeir og Sigurður þjálfuðu báðir Fram síðastliðið sumar en þeir hafa núna skrifað undir hjá ÍR sem hefur verið án þjálfara síðan að Brynjar Þór Gestsson og Arnar Þór Valsson hættu á dögunum.
Ásgeir er reynslubolti og hefur þjálfað lengi en hann lék á sínum tíma handbolta og körfubolta með ÍR. Sigurður sem er formaður knattspyrnuþjálfarafélags Íslands lék með ÍR upp alla yngri flokkana í knattspyrnu og hefur mikla reynslu af þálfun m.a. hjá Fram, Fylki, Aftureldingu og Breiðabliki.
Sigurður mun verða aðalþjálfari 2. flokks karla en auk þess mun hann þjálfa meistaraflokk með Ásgeiri. Þá munu þeir vinna að samhæfingarverkefni með þjálfurum yngri flokka (11 manna bolta) og loks skilgreina og koma af stað unglingaakademíu í samráði við unglingaráð knattspyrnudeildar segir á heimasíðu ÍR en þess má geta að á næsta árið verður félagið hundrað ára gamalt.