Fotbolti.net
01.10.06 - 23:50
Hafliði Breiðfjörð

Margrét Lára Viðarsdóttir til Duisburg (Staðfest)

Margrét Lára í leik með íslenska landsliðinu.

Margrét Lára í leik með íslenska landsliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Margrét Lára Viðarsdóttir landsliðsmaður Íslands er gengin í raðir þýska stórliðsins FCR Duisburg frá Val en hún skrifaði undir samning við þýska félagið nú um helgina.
Samningurinn gildir fram í júní 2008 en Margrét Lára mun halda utan fljótlega. Hún mun ekki fá leikheimild til að leika með liðinu í deildinni fyrr en í janúar en er lögleg í bikarleikjum og mun því verða í leikmannahópnum sem mætir Potsdam í bikarnum 22. október næstkomandi.

Tvö önnur þýsk lið höfðu áhuga á að fá Margréti Láru í sínar raðir en annað hinna liðanna var einmitt Potsdam sem er sama liðið og Valur mætti í Evrópukeppninni á síðustu leiktíð.

Hún skoðaði aðstæður hjá Duisburg helgina 15.-17. september síðastliðinn og sá þá meðal annars leik liðsins gegn Brauweiler sem Duisburg vann 8-1.

Hjá Duisburg hittir hún fyrir Viola Oderbrecht landsliðskonu Þýskalands sem lék með Val á fyrri hluta tímabilsins í sumar áður en hún hélt utan til að leika með Duisburg.

Margrét Lára er aðeins tvítug en hefur þegar skipað sér sess sem ein fremsta knattspyrnukona landsins. Hún átti frábært tímabil með Val í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði 34 mörk í 14 leikjum. Í bikarnum skoraði hún fimm mörk í þremur leikjum en Valur varð Íslands- og bikarmeistari.

Hún er frá Vestmannaeyjum og hóf feril sinn hjá ÍBV og gekk í raðir Vals haustið 2004. Hún spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir ÍBV er hún var nýorðin 14 ára gömul.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.