01.10.07 - 16:24
Hafliði Breiðfjörð
Harpa Þorsteinsdóttir í Breiðablik (Staðfest)

Harpa í leik með Stjörnunni í Landsbankadeildinni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðsstúlkan Harpa Þorsteinsdóttir gekk í dag í raðir Breiðabliks frá Stjörnunni. Harpa gerir þriggja ára samning við Breiðablik og ljóst að hér er að ræða mikinn liðsstyrk fyrir Kópavogsliðið.
Harpa sem er 21 árs gömul varð markahæsti leikmaður Stjörnunnar í ár með 11 mörk í 16 leikjum í Landsbankadeildinni.
Hún hefur alla sína tíð leikið með Stjörnunni þar sem hún hefur leikið rétt undir hundrað leikjum í deild og bikar en hún er miðvallarleikmaður.
Harpa vakti mikla athygli fyrr á árinu þegar hún var lánuð til Charlton Athletic í ensku deildinni. Hún lék þar 8 leiki fyrir liðið og skoraði í þeim eitt mark en það mark kom í fyrsta leik hennar með liðinu gegn Sunderland. Hún kom síðan aftur til Stjörnunnar fyrir sumarið og lék með liðinu í Landsbankadeildinni á nýliðnu tímabili.
Hún á að baki 6 leiki fyrir A-landslið Íslands 3 með U21 árs landsliðinu, 8 leiki og 3 mörk með U19 ára landsliðinu og 9 leiki og tvö mörk með U17.