Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 01. október 2020 18:48
Elvar Geir Magnússon
Arnór Sveinn í sóttkví - Ekki með gegn Víkingi
Arnór Sveinn Aðalsteinsson.
Arnór Sveinn Aðalsteinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nú klukkan 19:15 hefst leikur Víkings og KR í Pepsi Max-deildinni.

Rúnar Kristinsson gerir þrjár breytingar á byrjunarliði KR frá síðasta leik. Auk markvarðarbreytingar vegna leikbanns Beitis Ólafssonar þá koma Kennie Chopart og Óskar Örn Hauksson inn fyrir Arnór Svein Aðalsteinsson og Kristján Flóka Finnbogason.

Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá leiknum

Arnór Sveinn er ekki með þar sem hann er í sóttkví. Arnór er kennari og einn nemanda hans greindist með Covid-19 samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net.

Kristján Flóki er væntanlega meiddur en hann er skráður í liðsstjórn hjá KR-ingum í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner