Fotbolti.net
01.10.26 - 10:27
Kári Snorrason

Aron ekki komið við sögu í glugganum - Mun hann ná leikjametinu?

Næst leikjahæsti leikmaður Íslands frá upphafi.

Næst leikjahæsti leikmaður Íslands frá upphafi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eimskip
Aron Einar Gunnarsson hefur verið ónotaður varamaður í báðum leikjum Íslands í núverandi landsliðsglugga í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Hann tilkynnti nýverið að þetta yrði hans síðasta keppni með landsliðinu. Aron hefur spilað 110 landsleiki og er aðeins fjórum leikjum frá því að bæta leikjamet Birkis Bjarnasonar.
Aron Einar: Þetta verður mín síðasta keppni með landsliðinu
TENGT EFNI

Aron Einar: Þetta verður mín síðasta keppni með landsliðinu

Ísland á fjóra leiki eftir í riðlinum í C-deild Þjóðadeildarinnar og þyrfti Aron að koma við sögu í þeim öllum til þess að bæta metið.

Skyldi Ísland lenda í 2. sæti riðilsins mun liðið mæta liði úr B-deild í umspili næsta vor. „Þjóðadeildin þetta haustið verður mitt síðasta mót í treyjunni bláu," sagði Aron í færslu sinni á Instagram. Spurning er hvort að hann gefi kost á sér næsta vor fari svo að Ísland endi í umspilinu.

Næsti leikur Íslands er næstkomandi laugardag gegn Búlgaríu á Laugardalsvelli. Því næst heldur liðið til Tallinn og mætir Eistlandi á þriðjudaginn í næstu viku.

Spilaði sinn fyrsta A-landsleik árið 2008.

Spilaði sinn fyrsta A-landsleik árið 2008.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.