01.11.05 - 17:48
Hafliði Breiðfjörð
Valur Fannar og Pálmi Rafn í Val (Staðfest)

Pálmi Rafn, Willum Þór Þórsson þjálfari og Valur Fannar Gíslason

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Pálmi Rafn, Willum Þór Þórsson þjálfari og Valur Fannar Gíslason

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Valsmenn styrktu leikmannahóp sinn gífurlega í dag er einn eftirsóttasti leikmaður landsins, Pálmi Rafn Pálmason skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. Á sama tíma skrifaði Valur Fannar Gíslason fyrirliði Fylkis undir þriggja ára samning við Val.
Auk þeirra hefur Valur framlengt samningi sínum við Sigurbjörn Hreiðarsson og varamarkvörðinn Kristinn Geir Guðmundsson.
Þá tilkynntu Valsmenn einnig í dag að Guðmundur Benediktsson og Sigþór Júlíusson muni báðir leika með liðinu á komandi leiktíð.
Þá tilkynntu Valsmenn einnig í dag að Guðmundur Benediktsson og Sigþór Júlíusson muni báðir leika með liðinu á komandi leiktíð.

Kristinn Geir Guðmundsson skrifar undir


Valur Fannar skrifar undir


Pálmi og Sigurbjörn

