Fotbolti.net
01.11.06 - 12:37
Magnús Már Einarsson

Jóhann Þórhallsson til KR (Staðfest)

Jóhann og Gunnlaugur verða samherjar næsta sumar.

Jóhann og Gunnlaugur verða samherjar næsta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

KR hefur fengið sóknarmanninn Jóhann Þórhallsson frá Grindavík og gerir hann þriggja ára samning við félagið. Jóhann hefur áður leikið með KR en hann var hjá félaginu 1999-2000 og er því ekki ókunnugur í Vesturbænum.
Jóhann sem er 26 ára lék sinn fyrsta leik í efstu deild árið 1999, með KR gegn ÍA. Hann er uppalinn hjá Þór og hefur auk KR og Grindavík leikið með KA hér á landi.

Hann skoraði tíu mörk í átján leikjum í Landsbankadeildinni í sumar og var þriðji markahæsti maður deildarinnar en alls hefur hann skorað 23 mörk í 63 leikjum í efstu deild.

Í fyrra þegar þessi mikli markaskorari lék með KA var hann valinn í lið ársins í fyrstu deild karla í kjöri fyrirliða og þjálfara sem Fótbolti.net stóð fyrir.

Í fréttatilkynningu frá KR segir meðal annars: ,,Stjórn KR Sport og þjálfarar félagsins eru mjög ánægðir að fá Jóhann til KR en hann styrkir enn frekar sókn liðsins með þeim Björgólfi Takefusa og Grétari Hjartarsyni."

Sjálfur segir Jóhann að frá því að ljóst var að KR hefði áhuga á að fá hann til liðs við félagið var aldrei spurning hvert hann vildi fara.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.