Fotbolti.net
01.11.06 - 14:39
Hafliði Breiðfjörð

Pétur Hafliði Marteinsson til KR (Staðfest)

Pétur fyrir landsleik með Íslendingum.

Pétur fyrir landsleik með Íslendingum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

KR-ingar staðfestu nú rétt í þessu að Pétur Hafliði Marteinsson hefur tekið ákvörðun um að ganga til liðs við félagið frá Hammarby. Ljóst er að um gríðarlegan styrk er að ræða fyrir KR-inga sem ætla sér greinilega stóra hluti á næstu leiktíð.
Þeir tilkynntu fyrr í dag um komu Jóhanns Þórhallsonar úr Grindavík og áður höfðu þeir Atli Jóhannsson, Óskar Örn Hauksson og Stefán Logi Magnússon komið til liðs við KR.

Auk þess að verða leikmaður KR un Pétur jafnframt vera ráðgjafi innan KR Akademíunnar og miðla af reynslu sinni til yngri leikmanna félagsins. Í yfirlýsingu KR í dag sagði:

,,Stjórn KR Sport og þjálfarar félagsins eru mjög ánægðir að fá Pétur til KR og kemur hann til með að styrkja liðið enn frekar fyrir komandi tímabil."

Pétur Marteinsson er 33 ára gamall fyrrum landsliðsmaður Íslands. Hann hóf feril sinn hjá Fram árið 1991 en lék með Leiftri á Ólafsfirði árin 1992-1993 áður en hann fór aftur í Fram og lék með þeim 1994 og 1995. Árið 1996 gekk hann í raðir Hammarby í Svíþjóð og lék mðe þeim út tímabilið 1998.

Árið 1999 gekk hann í raðir Stabæk í Noregi og lék þar til ársins 2001 er hann gekk til liðs við Stoke City á Englandi þar sem hann var til 2003. Hann fór svo aftur til Hammarby það ár og er að ljúka tímabilinu með sænska félaginu sem á tvo leiki eftir af mótinu.

Pétur á að baki 36 leiki í efstu deild hér á landi en hann lék sinn fyrsta leik 4. júlí 1991 er hann kom inná sem varamaður fyrir Jón Erling Ragnarsson í liði Fram þegar þrjár mínútur voru til leiksloka.

Hann hefur skorað 9 mörk í 119 deildarleikjum með Hammarby. Hann hefur einnig leikið 24 leiki í sænsku bikarkeppninni, tvo í UEFA-bikarnum og einn í Royal League.

Hann skoraði tvö mörk í 18 deildarleikjum með Stoke en lék einnig tvo leiki í ensku bikarkeppninni. Hann skoraði fjögur mörk í 64 deildarleikjum með Stabæk. Hann skoraði einnig eitt mark í sjö bikarleikjum og lék einn leik í UEFA-bikarkeppninni.

Pétur á að baki 36 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og hefur skorað í þeim eitt mark. Hann lék síðast með íslenska landsliðinu gegn Ungverjalandi í júní 2005.
Pétur í leik með Hammarby.

Pétur í leik með Hammarby.

Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.