01.11.07 - 11:57
Hafliði Breiðfjörð
Jonathan Macken til Barnsley (Staðfest)

Macken er hér vinstra megin á myndinni.

Mynd: Getty Images

Macken er hér vinstra megin á myndinni.

Mynd: Getty Images
Barnsley hefur fengið Jonathan Macken framherja Derby County á láni næstu tvo mánuðina en leikmaðurinn hefur ekki leikið með Derby síðan liðið komst upp í ensku úrvalsdeildina. Hann verður nú út árið hjá Barnsley.
Macken kostaði Derby 5 milljónir punda þegar hann var keyptur frá Crystal Palace í janúar. Þrátt fyrir að hafa skorað fimm mörk í 11 leikjum fyrir Derby á tímabilinu er hann ekki í myndinni hjá Billy Davies stjóra liðsins sem ákvað að lána hann.
Macken mun spila við hlið Lewin Nyatanga hjá Barnsley en sá er einnig á láni frá Derby County fram í janúar.
Macken gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Barnsley er liðið mætir Preston North End í Championship deildinni á laugardag.

Heimild: Sky