Fotbolti.net
01.11.07 - 13:21
Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Þór Gunnarsson til Norrköping (Staðfest)

Gunnar Þór Gunnarsson.

Gunnar Þór Gunnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bakvörðurinn Gunnar Þór Gunnarsson hefur verið seldur frá Hammarby í Svíþjóð til Norrköping sem verða nýliðar í efstu deild þar í landi á næstu leiktíð. Ólafur Garðarsson umboðsmaður Gunnars Þór staðfesti þetta við Fótbolta.net í dag en Gunnar Þór gerir þriggja ára samning við sænska félagið.

Ólafur sagði að viðræður hafi staðið yfir vegna skiptanna að undanförnu og málið gekk í gegn í dag. Gunnar var svo kynntur sem leikmaður félagsins nú eftir hádegið.
Þar með er ljóst að Norrköping verður áfram með tvo Íslendinga í sínum röðum á næstu leiktíð því framherjinn Garðar Gunnlaugsson leikur með liðinu. Stefán Þórðarson sem hefur verið tekinní guðatölu hjá félaginu er hinsvegar gengin í raðir Skagamanna og leikur því ekki áfram með liðinu.

Gunnar Þór var seldur til Hammarby frá Fram í lok mars í fyrra og stóð sig mjög vel með sænska félaginu. Frammistaða hans þar varð til þess að hann var valinn í íslenska landsliðshópinn sem mætti Spánverjum í lok mars á þessu ári og var í byrjunarliði Íslands í þeim leik. Hann á að baki 3 A-landsleiki.

Gunnar Þór lék 20 leiki með Hammarby í sænsku deildinni í sumar, þar af 8 sem byrjunarliðsmaður. Hammarby endaði í sjötta sæti sænsku deildarinnar sem lauk um síðustu helgi. Í heildina spilaði hann 42 leiki með Hammarby í Allsvenskan.

Hann er annar Íslendingurinn sem yfirgefur Hammarby nú í haust því félagið ákvað í gær að kaupa ekki Heiðar Geir Júlíusson sem var á láni frá Fram.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.