Fotbolti.net
01.11.07 - 20:38
Hafliði Breiðfjörð

Martin Taylor til Norwich á láni (Staðfest)

Martin Taylor.

Martin Taylor.

Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham hefur lánað varnarmanninn Martin Taylor til Norwich og leikmaðurinn er því orðinn fyrsti leikmaðurinn sem Glenn Roeder nýráðinn stjóri Norwich fær til liðs við sig.
Taylor sem er 27 ára gamall hefur aðeins spilað einn leik fyrir Birmingham á tímabilinu. Lánssamningur hans núna stendur til 8. desember næstkomandi.

,,Hann er leikmaður sem ég hef fylgst með allan hans feril og hann mun verða mikilvægur meðlimur liðs okkar meðan hann verður hjá okkur," sagði Roeder.

,,Hann færir okkur hæð sem er nokkuð sem okkur vantar sérstaklega," bætti hann við á vefsíðu félagsins.

Taylor kom til Birmingham frá Blackburn árið 2004 en kaupverðið var 1,25 milljón punda. Hann gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Norwich gegn Ipswich á sunnudag en Norwich er í neðsta sæti deildarinnar.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.