01.11.26 - 14:00
Brynjar Ingi Erluson
Pálmi Rafn heim í Njarðvík (Staðfest)

Mynd: Njarðvík

Mynd: Njarðvík
Pálmi Rafn Arinbjörnsson er snúinn aftur heim í Njarðvík eftir að hafa fengið félagaskipti frá Íslandsmeisturum Víkings. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við Njarðvíkinga.

TENGT EFNI
Pálmi Rafn hættur - „Tilfinningin að elska fótbolta kom aldrei"
Pálmi er 22 ára gamall og uppalinn Njarðvíkingur, en á sínum tíma varð hann yngsti leikmaðurinn í sögu félagsins til að skrifa undir leikmannasamning.
Hann var síðar seldur til Wolves á Englandi, þar sem hann var í nokkur ár, auk þess sem hann lék á láni hjá Skeid í Noregi áður en hann sneri heim og samdi við Víking.
Pálmi lék með Víkingi tímabilin 2024 og 2025 áður en hann tók sér ársfrí frá fótbolta. Nú er hann hins vegar mættur aftur til leiks og hefur fengið félagaskipti frá Víkingi til uppeldisfélagsins Njarðvíkur.
Hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við Njarðvík sem gildir út árið 2029.
Pálmi á að baki 18 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og ætti að reynast Njarðvíkingum mikill liðsstyrkur í Lengjudeildinni.