Fotbolti.net
01.11.26 - 19:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Túfa og Niko kynntir hjá KA í vikunni?

Túfa og Niko kynntir hjá KA í vikunni?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
KA er stórhuga fyrir baráttuna í Lengjudeildinni næsta sumar en Fótbolti.net hefur fengið ábendingar um að það sé frágengið að Srdjan Tufegdzic, Túfa, taki við sem þjálfari liðsins og Nikolaj Hansen verði leikmaður þess.
Túfa þekkir vel til hjá KA en hann spilaði með liðinu eftir komuna til Akureyrar fyrir 20 árum síðan, varð síðar aðstoðarþjálfari og svo aðalþjálfari. Hann var þjálfari liðsins þegar það fór upp úr næstefstu deild sumarið 2016.

Hann hefur verið án starfs síðan hann var látinn fara frá sænska félaginu Värnamo um mitt sumar.

Niko hefur verið eftirsóttur en hann hefur fengið verulega gott tilboð frá KA og mun taka slaginn með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.