Fotbolti.net
01.11.26 - 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Valur kynnir teymið í kringum Dóra Árna

Halldór Árnason

Halldór Árnason

Canon

Mynd: Valur

Halldór Árnason hóf formlega störf sem þjálfari Vals í dag en félagið kynnti teymið í kringum hann.

Oliver Sigurjónsson er aðstoðarþjálfari en Oliver var leikmaður Breiðabliks þegar Halldór var aðstoðarþjálfari og síðar þjálfari. Þeir urðu Íslandsmeistarar saman 2022 og 2024. Oliver lagði skóna á hilluna í fyrra og var þjálfari Augnabliks.
Guðmundur Magnússon tilkynnti í gær að skórnir væru komnir á hilluna og hann er í þjálfarateymi aðalliðs Vals og verður einnig þjálfari 2. flokks félagsins.

Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari en hann var Íslandsmeistari með Halldóri hjá Breiðabliki árið 2024. Hann var markmannsþjálfari Breiðabliks síðustu þrjú ár. Hann ólst upp hjá Val og spilaði með liðinu áður en atvinnumannaferillinn hófst.

Þá er Baldvin Orri Friðriksson áfram leikgreinandi og Kirian Elvira Acosta áfram styrktarþjálfari. Félagið er að vinna í því að ráða styrktarþjálfara en Einar Óli Þorvarðarson lét af störfum hjá félaginu eftir áratug í því starfi.

Oliver Sigurjónsson

Oliver Sigurjónsson

Canon

Mynd: Valur

Guðmundur Magnússon

Guðmundur Magnússon

Canon

Mynd: Valur

Haraldur Björnsson

Haraldur Björnsson

Canon

Mynd: Valur

Baldvin Orri Friðriksson

Baldvin Orri Friðriksson

Canon

Mynd: Valur

Kirian Elvira Acosta

Kirian Elvira Acosta

Canon

Mynd: Valur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.