02.11.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Messi allt í öllu í mikilvægum sigri

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Næst síðasta umferðin í deildarkeppni MLS deildarinnar fór fram í nótt. Lionel Messi var í aðalhutverki í 2-1 sigri Inter Miami á New England Revolution.
New England komst yfir snemma í seinni hálfleik en German Berterame jafnaði metin fyrir Inter Miami þegar hann skoraði með skoti úr teignum eftir að Messi skallaði boltann aftur fyrir sig.

Messi tryggði liðinu síðan sigurinn undir lokin. Hann kom sér auðveldlega frá þremur varnarmönnum og kom sér inn á teiginn og skoraði.
Inter Miami fór upp fyrir New England í 2. sæti Austurdeildar með 59 stig en New England er með 58 stig. Nashville hefur þegar unnið deildina og er með 74 stig.