Fotbolti.net
02.11.26 - 11:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Samningur Þórs og KA runninn út - Fundað í vikunni

Samningur Þórs og KA runninn út - Fundað í vikunni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Kvennaboltinn
Kvennaliðið Þór/KA hefur verið til frá 1999 sem samstarf tveggja stærstu íþróttafélaganna á Akureyri í meistaraflokki kvenna. Samstarfið hefur einnig náð niður í elstu yngri flokkana.

Nú er samstarfssamningur milli félaganna runnin út og hefur Fótbolti.net fengið ábendingar um að mögulega verði samstarfinu slitið, það sé þá frekar vilji KA megin að slíta samstarfinu. Það er þó alls ekki víst að svo verði raunin.

Félögin munu samkvæmt heimildum Fótbolta.net hittast í vikunni og ræða stöðuna. Samningurinn hefur áður runnið út til lengri tíma en liðið hélt þó áfram að spila undir merkjum beggja félaga.
Fari svo að félögin slíti samstarfinu fær Þór sætið í Bestu deildinni en KA færi í 2. deild. Það myndi líklega hafa slæmar afleiðingar fyrir bæði Dalvík/Reyni og Völsung sem hafa fengið leikmenn frá Akureyrarliðinu.

Þór/KA endaði í 8. sæti Bestu deildarinnar í sumar og endaði í 7. sæti 2025. Liðið varð Íslandsmeistari 2012 og 2017. Aðalsteinn Jóhann Friðriksson er þjálfari liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.